23.05.1979
Sameinað þing: 103. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5283 í B-deild Alþingistíðinda. (4741)

264. mál, fiskeldi að Laxalóni

Forseti (Gils Guðmundsson):

Komi ekki fleiri aths. fram lít ég þannig á, að á næsta fundi í Sþ., sem haldinn verður að loknum deildafundum, verði tekin á dagskrá samkv. þessari nýsamþykktu till. kosning þriggja manna til þess að vinna það verk sem þar greinir. Ella tel ég að hv. Alþ. verði nú að skera úr hvort heldur það aðhyllist þennan skilning eða hinn.