23.05.1979
Efri deild: 119. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5284 í B-deild Alþingistíðinda. (4755)

Starfslok efri deildar

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Með því að þetta er síðasti þingfundur hv. Ed. á þessu þingi, þar sem ákveðið er að þinglausnir fari fram í dag, vil ég nú þegar störfum deildarinnar lýkur nota tækifærið til þess að þakka hv. þdm. fyrir samveruna á þessu þingi og ánægjulegt samstarf. Ég vil þakka skrifurum deildarinnar fyrir ágætt starf og varaforsetum deildarinnar fyrir alla aðstoð sem þeir hafa veitt mér sem forseta. Skrifstofustjóra Alþingis og öðru starfsliði Alþingis svo og þingfréttariturum færi ég bestu þakkir fyrir ágætt samstarf. Nú þegar leiðir skilja óska ég öllum utanbæjarþm. góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu, og ég vænti þess, að við hittumst öll heil á komandi hausti þegar Alþ. kemur saman á ný.