23.05.1979
Neðri deild: 100. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5285 í B-deild Alþingistíðinda. (4759)

80. mál, sala notaðra lausafjármuna

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., fjallar um sölu notaðra lausafjármuna, og þar undir koma m. a. notaðar bifreiðar. Ég vil aðeins minna á það við þessa umr., að fyrr í vetur flutti ég þáltill. í Sþ. um að endurskoðaðar yrðu allar þær reglur sem fjalla um sölu notaðra bifreiða, þannig að koma mætti í veg fyrir, að óprúttnir bílasalar prettuðu almenning, og almenningur nyti fyllsta réttaröryggis. Þessi till. hefur ekki fengist afgreidd frá n. Hins vegar gengur þetta frv. að nokkru leyti í sömu átt og tryggir þetta að nokkru. Ég óttast hins vegar að þetta frv. gangi ekki nægilega langt í þá átt að tryggja réttarhagsmuni almennings í þessu máli.