23.05.1979
Neðri deild: 101. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5287 í B-deild Alþingistíðinda. (4772)

289. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Mér er kunnugt um undirbúning þessa frv. fram til þessa árs, en ég vil gjarnan bera fram þá spurningu til hæstv. menntmrh., — hvort sem henni yrði svarað nú við 1. umr. eða við 2. umr., það skiptir ekki máli, — hvort haft hafi verið samráð við þau sveitarfélög sem hér eru nefnd, að Reykjavíkurborg undanskilinni. Reykjavíkurborg hefur hingað til tekið þátt í kostnaði við Sinfóníuhljómsveit Íslands.