23.05.1979
Sameinað þing: 105. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5294 í B-deild Alþingistíðinda. (4787)

Þinglausnir

Gunnar Thoroddsen:

Fyrir hönd okkar alþm. þakka ég hæstv. forseta sameinaðs Alþingis orð hans og óskir í okkar garð. Hann hefur verið sanngjarn, réttdæmur og traustur forseti og ekkert getur raskað ró hans. Stundum eyðir gamansemi hans dimmum skýjum svo að aftur sér til sólar. Ég bið þingheim að taka undir þakkir og árnaðaróskir með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]