21.11.1978
Sameinað þing: 24. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 756 í B-deild Alþingistíðinda. (610)

334. mál, útgerð Ísafoldar

Fyrirspyrjandi (Stefán Jónsson):

Ég þakka aðeins ljós svör hæstv. sjútvrh. við þessari fsp. Það fór sem mig vænti um svör starfsmanna rn., sem eru býsna ljós, að ekki hafi af þeirra hálfu verið út á neitt að setja í sambandi við útgerð skipsins hér á landi eða það, hversu haldin voru skilyrði fyrir útgerð þess. Að því er varðar svar hæstv. ráðh. við síðari hluta fsp., þá lýsi ég aðeins yfir ánægju minni með það afdráttarlausa svar.