27.11.1978
Sameinað þing: 27. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1004 í B-deild Alþingistíðinda. (702)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf Halldórs Ásgrímssonar, sem er 1. varaþm. Framsfl. í Austurlandskjördæmi. Kjörbréfið er gefið út af yfirkjörstjórn Austurlandskjördæmis og undirritað af öllum nm. og er ekki að orðlengja það, að kjörbréfanefnd leggur til að kosningin verði tekin gild og kjörbréfið samþykkt.