19.10.1978
Sameinað þing: 4. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í B-deild Alþingistíðinda. (78)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Gils Guðmundsson):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 18. okt. 1978.

Ragnhildur Helgadóttir, 5. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Guðmundur H. Garðarsson viðskiptafræðingur, taki sæti á Afþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Bragi Sigurjónsson.

forseti Ed.

Það þarf að fara fram rannsókn á kjörbréfi varamanns, og mælist ég til þess að kjörbréfanefnd taki það til athugunar, og í fullu trausti þess, að hún vinni rösklega, gef ég 5 mínútna fundarhlé. — (Fundarhlé.)