05.12.1978
Sameinað þing: 30. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1279 í B-deild Alþingistíðinda. (864)
330. mál, atvinnumál aldraðra
Fyrirspyrjandi (Svava Jakobsdóttir):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svör hans. Ég hlýt þó að láta þess getið, að þau ollu mér vonbrigðum. Það er auðheyrt að svarið hefur verið sótt í skúffu rn., því efnislega var það nákvæmlega sama svarið og hæstv. fyrrv. félmrh., Gunnar Thoroddsen, gaf mér í fyrra, og hélt ég þó að stjórnarskipti hefðu orðið.
Það er ljóst að hér þarf frumkvæði rn. að koma til. Alþýðusamband Íslands og Vinnuveitendasamband hafa lýst áhuga sínum á því að vinna að þessu máli, en ég endurtek: Frumkvæði rn. þarf að koma til, og vænti ég þess, að hæstv. félmrh. geri hið bráðasta gangskör að því að skipa n. með fulltrúum þessara aðila og hrindi þessu máli af stað hið skjótasta.