23.10.1978
Sameinað þing: 6. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í B-deild Alþingistíðinda. (90)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Gils Guðmundsson):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 19. okt. 1978.

Ragnar Arnalds, 3. þm. Norðurl. v., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Norðurlandskjördæmi vestra, Hannes Baldvinsson framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fara fram í sameinuðu Alþingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Bragi Sigurjónsson,

forseti Ed.

Þá vil ég óska þess, að kjörbréfanefnd taki kjörbréf varaþm. til rannsóknar og verður 5 mínútna fundárhlé meðan sú rannsókn fer fram. — [Fundarhlé.]