07.12.1978
Sameinað þing: 32. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1338 í B-deild Alþingistíðinda. (931)
14. mál, rannsóknarnefnd til að kanna rekstur Flugleiða og Eimskipafélags Íslands
Forseti (Gils Guðmundsson):
Áður en ég gef hv. flm. orðið þykir mér rétt að taka þetta fram:
Nokkrir hv. alþm. hafa beint til mín þeirri spurningu, hvort þáltill. þessi, svo og 10. mál þessa fundar, þáltill. á þskj. 55, sem er hliðstæð að formi, séu fluttar á réttan þinglegan hátt. Bent er á í því sambandi að lagt sé til að kosnar verði rannsóknarnefndir, en slíkt megi gera í þd., en ekki í Sþ.
Í 39. gr. stjórnarskrár segir svo:
„Hvor þd. getur skipað nefndir innandeildarþm. til að rannsaka mikilvæg mál, er almenning varða. Þd. getur veitt n. þessum rétt til að heimta skýrslur, munnlegar og bréflegar, bæði af embættismönnum og einstökum mönnum.“
Að áliti flestra fræðimanna og samkv. venju verða rannsóknarnefndir aðeins kjörnar í þd., en ekki í Sþ. Samkv. sérstakri ályktun getur Sþ. hins vegar kosið mþn. um tiltekið málefni, en slíkri n. verður ekki veitt sérstakt rannsóknavald samkv. síðari hluta 39. gr. stjórnarskrárinnar. Till. sú, sem hér er til umr., er því venjuleg þáltill og nefndarskipun sú, sem hún gerir ráð fyrir, í samræmi við ákvæði 15. gr. laga um þingsköp, sem heimila hvort heldur deild eða Sþ. að kjósa lausanefndir til að íhuga einstök mál.