16.10.1979
Sameinað þing: 3. fundur, 101. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í B-deild Alþingistíðinda. (65)

Þingrof

Forseti (Oddur Ólafsson):

Hv. alþm. Ég þakka ykkur fyrir tillitssemi og notalegheit þá fáu daga sem ég hef stjórnað fundum sameinaðs þings. Ég þakka ykkur einnig fyrir litríkt, skemmtilegt samstarf á undanförnum átta árum og ég vona að flestir ykkar komi glaðir og ánægðir út úr þeirri orrahríð, sem fram undan er í stjórnmálunum, og hver hljóti þann árangur sem hann hefur til unnið. Ég þakka öllu starfsfólki Alþ. fyrir fyrirmyndarþjónustu og gef þar með hæstv. forsrh. orðið.