10.03.1980
Sameinað þing: 28. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 921 í B-deild Alþingistíðinda. (1026)
Rannsókn kjörbréfs
Forseti (Jón Helgason):
Mér hafa borist tvö bréf, svo hljóðandi:
„Sverrir Hermannsson, 4. þm. Austurl., hefur ritað mér á þessa leið.
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum get ég ekki setið þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Sjálfstfl. í Austurlandskjördæmi, Tryggvi Gunnarsson skipstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Sverrir Hermannsson,
forseti Nd.“
Benedikt Gröndal, 4. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum get ég ekki setið þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþfl., Jón Baldvin Hannibalsson ritstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara rannsókn kjörbréfs í sameinuðu þingi.
Alexander Stefánsson,
forseti Nd.“
Þar sem þessir varamenn, Tryggvi Gunnarsson og Jón Baldvin Hannibalsson, hafa ekki átt sæti á þessu Alþingi fyrr þarf að fara fram rannsókn kjörbréfs. Vil ég biðja kjörbréfanefnd að athuga kjörbréfin og verður gefið fundarhlé á meðan í 8 mínútur. — [Fundarhlé.]