10.03.1980
Efri deild: 44. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 934 í B-deild Alþingistíðinda. (1040)
111. mál, lántaka Framleiðsluráðs landbúnaðarins
Forseti (Helgi Seljan):
Varðandi afgreiðslu þessa máls úr þessari hv. d. vil ég aðeins taka það fram, að ég hafði gert ráð fyrir því, að eftir 2. umr. þessa máls gætum við sett nýjan fund og látið málið fara hér í gegnum 3. umr. Ég vil taka það fram, að hv. þm. Alþfl. höfðu ekkert við það að athuga að málinu yrði flýtt á þann veg, að það færi út úr þessari deild í dag við 3. umr.