19.12.1979
Neðri deild: 5. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í B-deild Alþingistíðinda. (109)

7. mál, söluskattur

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti: Þegar ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar gaf út þau brbl. sem hér eru til umræðu lýsti Sjálfstfl. sig andvígan þeim. Sjálfstfl. ber ekki ábyrgð á þeim brbl. sem núv. ríkisstj. hefur gefið út. Það er rétt að það komi hér fram vegna ummæla hv. 3. þm. Austurl. Við munum að sjálfsögðu veita þinglega fyrirgreiðslu varðandi þessi mál og koma þeim til nefndar. Við munum óska þar eftir upplýsingum sem þurfa að vera fyrir hendi til þess að hægt sé að athuga þessi mál. En ég vildi láta koma skýrt fram að þessi brbl., sem eru nánast framhaldsbrbl. frá ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar, eru með engum hætti á ábyrgð okkar sjálfstæðismanna.