13.03.1980
Efri deild: 47. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1088 í B-deild Alþingistíðinda. (1147)

117. mál, almannatryggingar

Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér er tekið til umr., flutti ég á næstsíðasta þingi, en það hlaut þá ekki afgreiðslu og með því hef ég endurflutt það nú í trausti þess að nú hljóti málið afgreiðslu.

Ég vil taka það fram, að það var raunar lítil von til þess að þetta mál fengi afgreiðslu á næstsíðasta þingi, vegna þess að það kom svo seint fram. En frv. þetta felur í sér félagslegar ráðstafanir sem er ætlað að bæta úr þeim félagslegu ástæðum sem nú geta samkv. lögum heimilað fóstureyðingu. Með frv. þessu er lagt til að bætt sé úr þessum félagslegu ástæðum með því að gera breytingar á lögum um almannatryggingar. Hér er um að ræða verulega aukna aðstoð við einstæðar mæður og heimildarákvæði um slíkt hið sama til hjálpar konum sem eru í hjúskap eða í sambúð, eru eru hjálpar þurfi. Ég skal nú gera grein fyrir hinum einstöku greinum þessa frv.

1, gr. frv. fjallar um mæðralaun. Þar er kveðið svo á að mæðralaun skuli vera árlega sem þar segir, eða með einu barni 300 þús. kr., með tveimur börnum 750 þús. kr. og með þremur börnum 1200 þús. kr. Hér er um að ræða verulega breytingu frá gildandi lögum og er það með tvennum hætti. Í fyrsta lagi, eru mæðralaunin stórlega hækkuð frá því sem nú er, en auk þess er breytt hlutföllum á mæðralaunum milli konu með eitt barn og konu með tvö börn og svo konu með þrjú börn eða fleiri. Hækkunin er mest þegar um eitt barn er að ræða, og það er einnig veruleg hækkun þegar um tvö börn er að ræða.

Til glöggvunar skal þess getið, að samkv. lögum urðu mæðralaun 1. mars s.l. eða eru núna með einu barni 85 714 kr., en hér er lagt til að þau verði 300 þús. kr. Með tveimur börnum eru nú mæðralaun 465 308 kr., en lagt er til að þau verði 750 þús. kr. Samkv. gildandi lögum eru mæðralaun nú með þremur börnum eða fleiri 930 568 kr., en með frv. þessu er gert ráð fyrir að sú upphæð nemi 1200 þús. kr.

Ástæður til þess, að gerð er tillaga um þessar breytingar, eru augljóslega þær, að ekki verður með neinum hætti talið að það sé nóg að gert í þessum efnum samkv. gildandi lögum. Það sjá menn best með því að líta á þær tölur sem ég hef hér gert grein fyrir, upphæð mæðralauna miðað við það sem nú er.

Ég kem þá að 2. gr. frv. Hún er á þá leið, að gert er ráð fyrir að ný grein komi í lögin um almannatryggingar er hljóði svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Greiða skal einstæðri móður óskerta dagpeninga samkv. 33. gr. (er verður 34. gr.) í 90 daga eftir barnsburð, enda njóti hún ekki orlofsfjár vegna barnsfæðingar.“

Við minnumst þess, að nú er í gildandi lögum að konur þær, sem eru í verkalýðssamtökunum, og konur í opinberri þjónustu hafa sérstakt fæðingarorlof. En ekki hafa allar íslenskar konur fæðingarorlof, og það er svo um þær konur sem eru mest þurfi fyrir aðstoð í þessu formi. Þar er um að ræða einstæðar mæður. Þetta ákvæði miðar að því að tryggja að undir öllum kringumstæðum fái einstæðar mæður sérstaka greiðslu í 90 daga eftir barnsburð. Er þá gert ráð fyrir að konan njóti ekki orlofsfjár vegna barnsfæðingar samkv. öðrum ákvæðum laga.

Ég kem þá að 3. gr. frv. og vil segja um hana, sem reyndar á við 4. gr. frv. líka, að samkv. þeim greinum báðum eru teknar upp nýjar bætur til einstæðra mæðra, sem nú er ekki fyrir að fara í íslenskri löggjöf. Litið er á það, að einstæð móðir verður við fæðingu barns oft eða oftast fyrir ákveðinni röskun á stöðu og högum. Ekki er óeðlilegt að hin einstæða móðir njóti aðstoðar til að mæta þessu. Við gerum slíkt í öðrum tilfellum. Við höfum t.d. sérstakan ekkjulífeyri þegar kona missir maka sinn. Það er hugsað til þess að aðstoða konuna vegna þeirrar röskunar á stöðu og högum sem það hefur fyrir hana að missa eiginmanninn. Af svipuðum ástæðum þykir mér rétt að veita aðstoð til einstæðrar móður til þess að bæta henni upp röskun á stöðu og högum sem hún verður fyrir — og getur orðið með margvíslegum hætti — við barnsfæðingu.

Samkv. 3. gr. frv. er gert ráð fyrir að þær bætur, sem gert er ráð fyrir af þessum ástæðum til einstæðrar móður, séu jafnháar og ekkjubætur samkv. 1. mgr. 17. gr. almannatryggingalaga. Þessum bótum á ekkjan rétt á í 6 mánuði. Ég geri ráð fyrir að hin einstæða móðir hafi rétt til bóta í jafnlangan tíma.

Í 17. gr. laga um almannatryggingar er svo í framhaldi af ákvæðum um ekkjubætur, sem ég hef hér vikið að, ákvæði um að ef bótaþegi eigi barn yngra en 17 ára á framfæri sínu eigi hann rétt á bótum í 12 mánuði til viðbótar. 4. gr. frv. mælir svo fyrir að hin einstæða móðir skuli undir sömu kringumstæðum, þ.e. ef barn innan 17 ára er fyrir á framfæri hennar, eiga rétt á hinum sérstöku bótum í 12 mánuði til viðbótar eins og ekkjan.

Ég kem þá að 5. gr. frv. Í þeirri grein er gert ráð fyrir að ný grein komi inn í lög um almannatryggingar þar sem verði tekin upp sérstök heimildarákvæði til aðstoðar í fyrsta lagi við einstæða móður og í öðru lagi við konu í hjúskap eða í sambúð undir vissum kringumstæðum. Hvað varðar konu, sem er einstæð móðir, er svo kveðið á í 1. mgr. 5. gr. frv., að þegar niður falli bætur þær, sem ég var að gera grein fyrir og eru samkv. 3. og 4. gr. þessa frv., sé tryggingaráði heimilt að greiða einstæðri móður allt að fullum lífeyri einstaklings samkv. 11. gr. laga um almannatryggingar ásamt tekjutryggingu samkv. 19. gr. Hér er sett inn heimildarákvæði sem að sjálfsögðu er ekki gert ráð fyrir að verði notað nema undir vissum kringumstæðum, þ.e. að það sé nauðsynlegt til aðstoðar við hina einstæðu móður.

Hér er vitnað til lífeyris einstaklings samkv. 11. gr. laga um almannatryggingar, þ.e., eins og segir í skýringu um með frv., að gert er ráð fyrir að upphæð þessara bóta sé sem svarar til þess sem segir í 11. gr., en þar eru ákvæði um ellilífeyri. En ellilífeyririnn er mismunandi, svo sem kunnugt er, eftir því hvort hann er fyrst tekinn við 67 ára aldur eða 72 ára aldur eða einhvers staðar þar á milli.

Það er ekki ástæða, að mínu viti, til að kveða nánar á um hve upphæðin á að vera há. Samkv. heimildarákvæðinu í 1. mgr. 5. gr. frv. hefur tryggingaráð í hendi sér að meta það. En þó þykir mér líklegt, þar sem er um heimildarákvæði að ræða, að þetta muni ekki fara yfir lægsta flokk ellilauna, þ.e. ef miðað er við að ellilaunin séu fyrst tekin við 67 ára aldur, en það er samt veruleg upphæð á ári og er nú 977 154 kr. En með því að þetta er heimildarákvæði er að sjálfsögðu á valdi tryggingaráðs að meta hve upphæð þessi yrði há í hverju einstöku tilfelli.

Allt, sem ég hef sagt fram að þessu, varðar bætta aðstöðu einstæðra mæðra. En frv. þetta gerir ráð fyrir að það geti verið að fleiri séu aðstoðar þurfi í þessu efni en einstæðar mæður, það geti verið að svo sé ástatt um konu í hjúskap eða í sambúð. Þess vegna gerir 2. mgr. 5. gr. frv. ráð fyrir að tryggingaráð fái heimild til þess að ákveða greiðslur til kvenna í hjúskap eða í sambúð, sams konar greiðslur og gert er ráð fyrir til einstæðra mæðra, en ekki skilyrðislaust. Þetta verði bundið því skilyrði að tekjur hjónanna eða sambúðarfólksins fari ekki fram úr ákveðnu marki og auk þess að ástand á heimilum þessara mæðra sé það slæmt að það jafngildi þeim ástæðum sem samkv. gildandi lögum heimila fóstureyðingu.

Þetta er tekið skýrt fram í 5. gr. frv., því að þar segir að þessar bætur komi aðeins til að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum: Í fyrsta lagi hafi konan alið mörg börn með stuttu millibili og skammt sé liðið frá síðasta barnsburði. Í öðru lagi eigi konan við að búa bágar heimilisástæður vegna ómegðar eða alvarlegs heilsuleysis annarra á heimilinu. Í þriðja lagi vegna annarra ástæðna sem eru sambærilegar við ofangreindar ástæður.

Þetta ákvæði er orðrétt upp úr gildandi lögum, orðrétt tilteknar þær ástæður sem geta heimilað fóstureyðingu nú. Þetta og raunar allt þetta frv. er byggt á þeirri forsendu, að ekki sé eðlilegt að fóstri sé eytt af félagslegum ástæðum. Það eitt sé eðlilegt að leysa og bæta úr hinum félagslega vanda.

Frv. þetta er flutt í framhaldi, ef svo mætti segja, af því frv. sem við vorum áðan að vísa til hv. heilbr.- og trn., frv. er fjallar um fóstureyðingar. Í því frv. er lagt til að félagslegar ástæður geti ekki heimilað fóstureyðingu. Ég hef nú á þessum fundi hv. deildar skýrt þær ástæður, sem liggja til grundvallar því frv., og skal því ekki fara að ræða þau mál frekar nú. En ég legg áherslu á að þetta frv. er flutt í framhaldi af hinu fyrra, frv. um fóstureyðingar, og til þess að árétta þau sjónarmið sem ég túlkaði í því máli.

Frv., sem við nú ræðum, felur í sér tilteknar breytingar á tryggingalöggjöfinni sem að mínu viti eru um það sem mest er um vert og á heima í lögum um almanntryggingar. Ég veit að það geta verið ýmsir aðrir erfiðleikar fyrir hendi sem þetta frv. nær ekki til. Ég tel að frv. sé ákaflega þýðingarmikið, geti verið þýðingarmikið spor í þá átt að þjóðfélagið taki á sig þá skyldu að aðstoða hinar einstæðu mæður í staðinn fyrir að hlaupa frá þessum skyldum með því að heimila fóstureyðingu af félagslegum ástæðum.

Við munum aldrei hafa það ástand í þessu landi í félagslegum málefnum að ekki sé alltaf hægt að finna einhverja erfiðleika sem ekki verður séð við í löggjöf. En við erum á mikilli framfaraleið í þeim efnum. Við höfum verið það á síðustu árum og á síðustu áratugum. Við erum alltaf að bæta okkur í þessum efnum. En það yrði enn þá aukin hvatning ef nú yrði fellt úr lögum að félagslegar ástæður gætu heimilið fóstureyðingar. Og samkv. því, sem ég hef lagt til í frv. um fóstureyðingar, á að banna skilyrðislaust að eyða fóstri af félagslegum ástæðum.

Ég vil taka það fram, að þrátt fyrir mikilvægi hinna félagslegu ástæðna, sem ég legg mikla áherslu á að bæta úr, er ástæðan fyrir því, að ekki eigi að leyfa fóstureyðingar af félagslegum ástæðum, fyrst og fremst siðferðileg. Við skulum hafa það í huga, að umhyggja fyrir barni, sem fæðist í þennan heim, fer ekki alltaf eftir ríkidæmi eða því, hve félagsmálalöggjöfin er fullkomin. Og það hafa margir orðið góðir þegnar sem alist hafa upp við þröngan kost, á sama hátt sem jafnvel ríkidæmi er engin trygging í þessu efni. En ég vil, þó að ég leggi mikla áherslu á hinar félagslegu umbætur, einnig leggja áherslu á hin víðtækari sjónarmið sem við verðum einnig að hafa í huga.

Herra forseti. Áð lokinni þessari umr. legg ég til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.