19.03.1980
Neðri deild: 46. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1280 í B-deild Alþingistíðinda. (1257)

45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Forseti (Garðar Sigurðsson):

Ég verð enn einu sinni að óska eftir því, að menn tali mjög stutt undir þessum lið. Ég harma það hins vegar, að hv. 9. þm. Reykv. skuli ekki hafa tekið eftir því sérstaka ástandi sem er í stjórnmálum landsins, og virðist ekki horfa til þeirra staðreynda sem við öllum blasa.