20.12.1979
Sameinað þing: 5. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í B-deild Alþingistíðinda. (131)

2. mál, viðskiptasamningur EFTA-landanna og Spánar

Frsm. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Utanrmn. hefur fjallað um till. til þál. um heimild fyrir ríkisstj. til þess að fullgilda viðskiptasamning EFTA-landanna og Spánar sem frá er greint á þskj. 2. Í nál. frá utanrmn. á þskj. 43 kemur fram að allir nm. mæla einróma með samþykkt þessarar þáltill.

Ég tel svo einsætt að mæla skuli með samþykkt þessarar þáltill., að ég sé ekki ástæðu til að fjalla nánar um málið, enda hefur verið gerð grein fyrir því í aths. við þáltill. svo og í framsögu við fyrri umr. N. varð sammála um að mæla með samþykkt þáltill.