27.03.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1513 í B-deild Alþingistíðinda. (1463)

116. mál, fjárlög 1980

Steinþór Gestsson:

Herra forseti. Enda þótt hv. þm. hafi orðið á það slys að hafna þeim sparnaðartillögum sem hér eru lagðar fram ásamt þessari till. um aukið fé til vegagerðar, þá lít ég svo á, að hér sé um svo brýnt málefni að ræða, að samþykkja beri þessa auknu fjárveitingu og leiðrétta þetta við 3. umr. fjárl. Því segi ég já.