02.04.1980
Sameinað þing: 41. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1733 í B-deild Alþingistíðinda. (1594)

116. mál, fjárlög 1980

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Þetta nýja gjald er hluti af þeirri óðaskattheimtu sem er dengt yfir þjóðina á síðustu dögum fyrir páskahelgina til viðbótar öllu því sem áður hefur verið lagt á og fyrirhugað er. Ég tel að miðað við þær aðstæður, sem hinir almennu launþegar búa við í landinu í dag, sé ekki á bætandi, því að orðið er almenningseign að ferðast innanlands sem utan, og því segi ég nei.