10.04.1980
Efri deild: 63. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1848 í B-deild Alþingistíðinda. (1697)

135. mál, orkujöfnunargjald

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Hér er um réttlætis- og sanngirnismál að ræða, en sú fjáröflunarleið, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, er að mínu mati röng og óæskileg, hægt er að afla fjárins með öðrum hætti, og því segi ég nei.