14.04.1980
Sameinað þing: 43. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1896 í B-deild Alþingistíðinda. (1751)

118. mál, eftirgjöf á ársfjórðungsgjaldi fyrir síma hjá elli- og örokulífeyrisþegum

Forseti (Pétur Sigurðsson):

Nú er úr vöndu að ráða. Það er einn þm. á mælendaskrá, en hann situr í forsetastól og hinir forsetarnir ekki viðstaddir til að leysa hann af. En ég skal ekki tefja fyrir því að málið komist til n. Ég get alveg eins leiðrétt misskilning, sem hefur komið fram, við nm. Ég mun þess vegna falla sjálfur frá orðinu til að flýta fyrir málinu.