17.04.1980
Sameinað þing: 45. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1955 í B-deild Alþingistíðinda. (1802)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Skúli Alexandersson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman til fundar og tekið fyrir kjörbréf Guðrúnar Hallgrímsdóttur, 1. varamanns Alþb. í Reykjavíkurkjördæmi, sem tæki sæti Ólafs Ragnars Grímssonar, 11. þm. Reykv., sem hefur tilkynnt forföll. Kjörbréfanefnd er sammála um að leggja til að kosning Guðrúnar Hallgrímsdóttur verði tekin gild og kjörbréf samþ.