23.04.1980
Neðri deild: 63. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2049 í B-deild Alþingistíðinda. (1918)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 23. apríl 1980.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sinnt þingstörfum um sinn leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Austurlandskjördæmi, Sveinn Jónsson verkfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Hjörleifur Guttormsson,

5. þm. Austurl.“

Sveinn Jónsson hefur átt sæti á þingi áður á þessu þingi og býð ég hann velkominn til starfa þegar hann hefur risið úr rekkju sinni, en hann hefur veikindaforföll.