20.12.1979
Neðri deild: 10. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 140 í B-deild Alþingistíðinda. (193)

49. mál, almannatryggingar

Frsm. (Jóhanna Sigurðardóttir):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. heilbr.- og trn. um frv. um breyt. á lögum um almannatryggingar. N. hefur fjallað um frv., en um er að ræða að sjúkratryggingariðgjald verði lagt á með sama hætti og gert var á grundvelli ákvæða laga nr. 115/1978 á árinu 1979. Frv. er efnislega shlj. lögum nr. 115/1978 að öðru leyti en því sem leiðir af gildistöku nýrra laga um tekju- og eignarskatt, sbr. lög nr. 40/1978.

N. mælir með samþykkt frv., en Matthías Bjarnason, Pétur Sigurðsson, Jósef H. Þorgeirsson og Guðrún Helgadóttir skrifa undir nál. með fyrirvara.