23.04.1980
Neðri deild: 64. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2069 í B-deild Alþingistíðinda. (1945)

161. mál, tilbúningur og verslun með smjörlíki o.fl.

Landbrh. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Eins og fram kom í framsöguræðu minni er þetta frv. lagt fram hér í annað sinn. Það var til í landbrn. þegar ég kom þangað, en var fyrst lagt fram á 100. löggjafarþinginu. Hver þá hefur samið það veit ég ekki, en þá mun hafa mælt fyrir því þáv. landbrh. Steingrímur Hermannsson.