28.04.1980
Sameinað þing: 48. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2081 í B-deild Alþingistíðinda. (1964)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Jósef H. Þorgeirsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf Valdimars Indriðasonar, sem er 1. varamaður á lista Sjálfstfl. í Vesturlandskjördæmi. Nefndin er sammála um að meta kjörbréfið gilt og leggja til að kosning hans verði tekin gild.