28.04.1980
Sameinað þing: 48. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2083 í B-deild Alþingistíðinda. (1976)
156. mál, samkomulag Íslendinga og Færeyinga til veiða á kolmunna
Utanrrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Samkomulag það, sem hér um ræðir, gerir ráð fyrir að Íslendingar fái heimild til veiða 20 þús. lestir kolmunna innan fiskveiðilögsögu Færeyja og Færeyingar fái heimild til að veiða 20 þús. lestir kolmunna innan fiskveiðilögsögu Íslands.
Eins og fram kemur í aths. við þáltill. var samkomulagið gert að tilhlutan Landssambands ísl. útvegsmanna. Sex íslensk skip hafa þegar sótt um og fengið leyfi til kolmunnaveiða samkvæmt samkomulaginu við Færeyinga.
Þó að e. t. v. sé ekki skylt að leggja þetta samkomulag fyrir Alþingi hefur það verið talið rétt og í samræmi við þá venju sem hér mun hafa tíðkast.
Ég leyfi mér að leggja til að málinu verði að fyrri umr. lokinni vísað til hv. utanrmn.