29.04.1980
Efri deild: 71. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2167 í B-deild Alþingistíðinda. (2017)

56. mál, mat á sláturafurðum

Frsm. (Egill Jónsson):

Herra forseti. Við meðferð þessa máls í hv. Nd. kom fram ábending um að þessa undanþágu mætti skilja víðtækar en til er ætlast, en hún er einvörðungu miðuð við sauðfé og nautgripi. Þess vegna var frv. breytt í meðförum Nd. Alþingis.

Landbn. Ed. fellst á þessa breyt. og leggur til að málið fái þannig afgreiðslu úr Ed.