21.12.1979
Efri deild: 12. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 144 í B-deild Alþingistíðinda. (205)

32. mál, eftirlaun til aldraðra

Frsm. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti Heilbr.- og trn. hefur fjallað um frv. það sem hér liggur fyrir um eftirlaun til aldraðra og hefur skilað um það nál. á þskj. 69. Eins og það ber með sér mælir nefndin einróma með samþykkt frv. í þeim búningi sem það kom í frá hv. Nd. Vænti ég að þar með sé það tryggt, að þetta frv. nái heilu og höldnu í höfn og verði að lögum fyrir þessi áramót, eins og áformað hefur verið.