30.04.1980
Neðri deild: 67. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2267 í B-deild Alþingistíðinda. (2135)

127. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég óskaði eftir nafnakalli um þessa till. aðeins til þess að leiða það í ljós, að till. þessi er flutt af fulltrúum þingmanna Sjálfstfl. í fjh.- og viðskn. Nd. og ef hún fellur, till. fulltrúa þingflokks Sjálfstfl., þá fellur hún á atkvæðum sjálfstæðismanna sem eru í þessum sama þingflokki. Þetta er mjög athyglisvert ástand, einkennilegt og hörmulegt, að í einum og sama flokki skuli menn vera að leika sér með svona hluti. Herra forseti. Ég segi já.