30.04.1980
Neðri deild: 67. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2268 í B-deild Alþingistíðinda. (2140)
127. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Friðrik Sophusson: Herra forseti. Við hv. þm. í Nd. höfum orðið vitni að allmerkilegri atkvgr. hér í kvöld. þegar senn líður að 1. maí. Þannig er að mál komast ekki í gegn fyrr en eftir síendurteknar atkvgr. og þá upplýsir hæstv. forseti okkur um að mál hafi gengið þannig að þau séu samþykkt með 20:1 atkv. Ég hef reynt að skima hér í kringum mig og hvergi séð hægri hönd á lofti, en samkv. þingsköpum mun það vera skylda til þess að atkv, teljist gilt. Mig langar til þess að fara fram á það við hæstv. forseta, að hann skýri hvernig á því standi að þetta eina atkv. kemur alltaf fram.