21.12.1979
Efri deild: 15. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 147 í B-deild Alþingistíðinda. (226)

Þinghlé

Ólafur Jóhannesson:

Ég vil leyfa mér að þakka forseta fyrir hlý orð og góðar óskir í garð okkar þdm. Ég vil enn fremur þakka honum fyrir gott samstarf og góða fundarstjórn á þeim stutta tíma, sem af er þingtímans, og vænti að svo muni áfram verða. Ég vil jafnframt óska honum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og góðs og farsæls nýs árs og læt í ljós þá von, að við megum sjá hann heilan og glaðan að jólaleyfi loknu. Ég veit að ég mæli þessi orð fyrir munn allra hv. þdm., en vil biðja þá að taka undir þau með því að risa úr sætum. — [Þm. risu úr sætum.]