06.05.1980
Sameinað þing: 53. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2429 í B-deild Alþingistíðinda. (2277)
234. mál, fjárfestingar- og lánsfjáráætlun 1980
Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Það er lagaákvæði í kaupalögunum þar sem gert er ráð fyrir að orðið „ca.“ geti þýtt 5–10%, sem hefur orðið uppistaðan í ræðum hv. ræðumanna. Það, sem ég var að benda á, var í fyrsta lagi að varðandi fjárfestingu segir í stjórnarsáttmálanum: um fjórðungur. Ég vil halda því fram, að þau þurfi ekki að þýða nákvæmlega 25%. Það held ég að hver maður geti gert sér í hugarlund. Öðru máli gegndi ef við hefðum verið á sömu skoðun og Alþfl., nefnt t. d. 24.5 eða 25.5%. Nei, við sögðum einmitt af ásettu ráði: „um fjórðungur,“ til þess að væri nokkurt svigrúm. Þetta er augljóst mál.
Hv. 1. þm. Reykn. spurði mig hvort ætti að skilja það svo, að þetta 5–10% frávik ætti við um stjórnarsáttmálann í heild. Ég held að þegar litið er yfir störf ríkisstjórna á undanförnum áratugum mættu flestar ríkisstj. hrósa happi ef þeim hefði tekist á sínum starfstíma að framkvæma 90–95% af öllu sem þær hafa óskað eftir og sett í stjórnarsáttmála. Ég held t. d. að sú stjórn, sem við hv. 1. þm. Reykn. sátum saman í 1974 1978, hefði verið ákaflega ánægð ef hún hefði getað skilað fullum efndum á t. d. 95% af því sem í stjórnarsáttmálanum okkar stóð. Og ég held að við hefðum þá farið betur út úr kosningunum en raun varð á.
Varðandi vegáætlunina var spurt hvað orðalagið þýddi, að staðið yrði við vegáætlunina. Ég vil aðeins minna á það sem þá lá fyrir, að ríkisstj. Alþfl. hafði lagt fram fjárlagafrv. þar sem gert var ráð fyrir verulegum niðurskurði á þeirri vegáætlun sem samþ. var í fyrra til fjögurra ára, — verulegum niðurskurði í krónutölu frá því sem ákveðið var fyrir árið 1980. Þessi orð í stjórnarsáttmálanum eiga fyrst og fremst við þetta, að staðið yrði við vegáætlunina. Það var gert betur. Tveim milljörðum var bætt þar við.
Ég vil annars segja út af gagnályktun hv. þm. Þorvalds Garðars, að mér þykir ákaflega leitt þegar menn láta pólitíkina rugla svo heilbrigða dómgreind sína að kennaranum finnst að hann hafi lítinn sóma af lærisveininum.