07.05.1980
Efri deild: 77. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2434 í B-deild Alþingistíðinda. (2286)

93. mál, skráning og mat fasteigna

Frsm. (Lárus Jónsson):

Herra forseti. Hv. fjh.- og viðskn. hefur haft til athugunar frv. til l. um breyt. á lögum nr. 94 frá 1976, um skráningu og mat fasteigna. Þetta frv. gengur út á að rýmka ögn heimildir um að tiltekin sveitarfélög sjái sjálf um skráningu og mat fasteigna. N. mælir einróma með samþykkt frv. óbreytts.