07.05.1980
Efri deild: 77. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2449 í B-deild Alþingistíðinda. (2301)

7. mál, söluskattur

Frsm. meiri hl. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Eins og kunnugt er er hér um að ræða staðfestingu á brbl. sem setja varð í sambandi við þingrof, þannig að söluskattur félli ekki niður við þingrofið. N. hefur athugað þetta frv. og meiri hl, hennar, Ólafur Ragnar Grímsson, Kjartan Jóhannsson og Guðmundur Bjarnason, var sammála um að leggja til að það yrði samþykkt.