07.05.1980
Neðri deild: 71. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2451 í B-deild Alþingistíðinda. (2319)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 7. maí 1980.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sinnt þingstörfum um sinn leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, Sigurlaug Bjarnadóttir menntaskólakennari, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Matthías Bjarnason,

1. þm. Vestf.“

Sigurlaug Bjarnadóttir hefur áður átt sæti á þessu þingi

og býð ég þm. velkominn til starfa.