21.12.1979
Neðri deild: 11. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 154 í B-deild Alþingistíðinda. (233)
Umræður utan dagskrár
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Ég skal reyna að verða við ósk forseta um að verða mjög stuttorður, þó að tilefni hafi gefist til, bæði frá hendi ráðh. og fyrirspyrjanda, að tala nokkuð langt mál um þetta.
Ég vil spyrja hæstv. fjmrh. að því, hvort eigi að leggja til grundvallar fjárveitingu samkv. fjárl. vegna niðurgreiðslna og útflutningsuppbóta eða hvort eigi að standa við samþykktir um niðurgreiðslu á einingu, eins og ákveðið var að gera í ríkisstj. og lagt er til grundvallar fjárlagafrv.
Í fjárlagafrv., sem Tómas Árnason lagði fram fyrir kosningar, fylgir sundurliðuð áætlun um niðurgreiðslur á vöruverði. M.a. er áætlað að sölumagn dilkakjöts 8900 tonn og niðurgreiðsla á einingu miðað við júlí er 669 kr. Ársútgjöld vegna niðurgreiðslu á dilkakjöti eru áætluð 5820 millj. Ber þá að líta svo á, að þegar búið er að selja 8900 tonn af dilkakjöti sé niðurgreiðslum hætt samkv. þessum skilningi núv. hæstv. fjmrh.? Þetta er þá alveg nýr skilningur. Hér er farið eftir þeim niðurgreiðslum á einingu sem ákveðnar eru við gerð fjárl. eða af ríkjandi ríkisstj., og við það verður auðvitað að standa. Annars er komið í bakið á þessari atvinnugrein og þeim sem hér hafa hagsmuna að gæta.
Í fjárlagafrv. núv. fjmrh. eru niðurgreiðslur lækkaðar frá frv. fyrrv. fjmrh. sem nemur 2020 millj. eða úr 23 000 millj. í 20 980 millj. og skýringin, sem gefin er á því í fjárlagafrv., er að fyrirhugaðar hækkanir niðurgreiðslna á árinu 1980 eru felldar niður. Í þeirri miklu verðbólgu, sem hér er, eru þessar niðurgreiðslur felldar niður. Nú er ég ekki að gagnrýna það, að niðurgreiðslur séu lækkaðar. Ég hef talið að að mörgu leyti hafi verið gengið allt of langt í þeim efnum. En ég tel að á meðan niðurgreiðslur eru í gildi og þær eru ákveðnar á einingu beri ríkissjóði að standa við þær, en ekki sé hægt að segja, þegar komið er í ákveðið magn: Hingað og ekki lengra, nú stoppum við.
Út af því, sem hv. 2. þm. Norðurl. e. sagði — og beindi þá orðum sínum til formanns Sjálfstfl., hann væri ábyrgðarmaður þessarar ríkisstj. - vil ég nú leyfa mér fyrir hönd Sjálfstfl. alls að lýsa því yfir, að Sjálfstfl. ber enga ábyrgð á þessari ríkisstj., veitir henni ekki hlutleysi og því síður stuðning. Ábyrgðarmaður þessarar ríkisstj. er forseti Íslands. Hún situr á hans ábyrgð, og það hélt ég að jafnkunnugur maður þingmálum og hv. 2. þm. Norðurl. e. vissi: Hins vegar eru gælur miklar á milli þess flokks, sem nú situr í ríkisstj., og flokks hv. þm., því það hefur ekki verið hægt að koma hnífnum þar á milli síðustu vikurnar eins og allir vita. Formaður Framsfl. hefur verið sitt á hvað til vinstri eða hægri við þessa kratahlið undanfarnar vikur, og hágrátandi kom hann fram í hádegissjónvarpi í dag, þar sem hann telur að það séu blikur á lofti að þetta kærleiksheimili geti haldið áfram. (Gripið fram í: Hver grætur næst?)