08.05.1980
Sameinað þing: 54. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2503 í B-deild Alþingistíðinda. (2369)

153. mál, Evrópusamningur um varnir gegn hryðjuverkum

Frsm. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Utanrmn. hefur fjallað um till. þessa til þál. um heimild fyrir ríkisstj. til að fullgilda Evrópusamning um varnir gegn hryðjuverkum. Nefndin hefur rætt till. og leggur eindregið til að hún verði samþykkt.