08.05.1980
Sameinað þing: 54. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2503 í B-deild Alþingistíðinda. (2371)

156. mál, samkomulag Íslendinga og Færeyinga til veiða á kolmunna

Frsm. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Utanrmn. hefur haft þáltill. þessa til meðferðar og rætt hana. Leggur nefndin eindregið til að hún verði samþykkt.