17.12.1979
Sameinað þing: 2. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (25)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Jón Helgason):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 14. des. 1979.

Sverrir Hermannsson, 4. þm. Austurl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að vegna forfalla 1. varamanns taki 2. varamaður Sjálfstfl. í Austurlandskjördæmi, Þráinn Jónsson framkvæmdastjóri, sæti á Alþingi í fjarveru minni. Þetta er yður herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sverrir Hermannsson,

forseti Nd.

Og hér hefur borist skeyti:

„Vegna starfa minna get ég ekki tekið sæti mitt á Alþingi sem varamaður Sverris Hermannssonar nú.

Virðingarfyllst,

Tryggvi Gunnarsson,

Miðbraut 7, Vopnafirði.“

Ég vil biðja kjörbréfanefnd að athuga kjörbréf Þráins Jónssonar sem hér liggur fyrir. Verður gefið fundarhlé í 8 mínútur, til fimmtán mínútur yfir tvö. — [Fundarhlé].