12.05.1980
Neðri deild: 74. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2561 í B-deild Alþingistíðinda. (2515)

53. mál, almenn hegningarlög

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Þetta frv. fjallar einnig um breytingu á almennum hegningarlögum. Það er enn fremur komið frá Ed. Það fjallar einungis um viðauka við 6. gr. almennra hegningarlaga og er borið fram vegna fyrirhugaðrar fullgildingar Íslands á Evrópusamningi frá 27. janúar 1977 um varnir gegn hryðjuverkum. Er lagt til að unnt verði að refsa eftir íslenskum hegningarlögum fyrir háttsemi þá sem greinir í fyrrnefndum milliríkjasamningi, enda þótt hún hafi átt sér stað utan íslenska ríkisins og án tillits til þess hver er að hryðjuverkunum valdur.

Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þetta frv., en ég vil leyfa mér að leggja til að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og allshn.