12.05.1980
Neðri deild: 74. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2562 í B-deild Alþingistíðinda. (2521)

67. mál, búfjárhald í kaupstöðum og kauptúnum

Frsm. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Félmn. Nd. hefur athugað frv. til l. um breyt. á lögum nr. 44 frá 23 maí 1964, um búfjárhald í kaupstöðum og kauptúnum. Að áliti n. er hér um mál að ræða sem lengi hefur verið beðið eftir að sett yrði um löggjöf, og n. er sammála um að mæla með því að frv. verði samþ. óbreytt.