17.12.1979
Sameinað þing: 2. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í B-deild Alþingistíðinda. (26)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf Þráins Jónssonar framkvæmdastjóra, Lagarfelli 3, Fellum, sem kemur nú til þings í stað Sverris Hermannssonar, 4. þm. Austurl., sem farinn er af landi brott. Þráinn Jónsson er 2. varaþm. Sjálfstfl. í Austurlandskjördæmi, en borist hefur símskeyti frá 1. varamanni, Tryggva Gunnarssyni, sem getur ekki tekið sæti á þingi vegna starfa sinna, eins og símskeytið ber með sér. Kjörbréfanefnd leggur til að kosning Þráins Jónssonar verði tekin gild og kjörbréfið samþykkt.