21.12.1979
Neðri deild: 14. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 167 í B-deild Alþingistíðinda. (272)
Þinghlé
Forseti (Alexander Stefánsson):
Þar sem þetta er síðasti fundur í Nd. fyrir jólaleyfi leyfi ég mér að þakka öllum hv. þdm. gott samstarf og sérstakt umburðarlyndi í minn garð sem forseta. Einnig flyt ég skrifurum deildarinnar og 2. varaforseta svo og skrifstofustjóra Alþingis og öllu starfsfólki þingsins bestu þakkir fyrir vel unnin störf í þágu þessarar deildar. Ég óska hv. alþm. og starfsfólki þingsins gleðilegra jóla og góðs og farsæls komandi árs og ég vona sannarlega að við megum öll hittast heil til starfa á nýju ári.