21.12.1979
Neðri deild: 14. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í B-deild Alþingistíðinda. (273)

Þinghlé

Ragnar Arnalds:

Ég vil fyrir hönd þdm. þakka forseta fyrir hlýleg orð og góðar kveðjur okkur til handa. Kjörinn forseti deildarinnar er fjarstaddur, en 1. varaforseti hefur einkum gegnt störfum í hans stað. Ég vil þakka honum fyrir ágæta fundarstjórn og óska honum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla. Ég vænti þess, að við hittumst öll heil á húfi að loknu jólaleyfi, og bið hv. þm. að rísa úr sætum og taka undir orð mín. — [Dm. risu úr sætum.]