16.05.1980
Neðri deild: 78. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2776 í B-deild Alþingistíðinda. (2742)

150. mál, ávana- og fíkniefni

Frsm. (Jósef H. Þorgeirsson):

Herra forseti. Heilbr.- og trn. hefur haft til athugunar frv. til l. um breyt. á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65 frá 1974, en frv, þetta gerir ráð fyrir að hækka sektarrammann í 5. gr. laganna úr 1 millj. kr. í 6 millj. kr. til samræmis við verðlagsbreytingar í landinu frá því að lögin voru sett. N. er sammála um að mæla með því að frv. verði samþ. óbreytt.