17.05.1980
Efri deild: 93. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2797 í B-deild Alþingistíðinda. (2751)
161. mál, tilbúningur og verslun með smjörlíki o.fl.
Frsm. (Jón Helgason):
Herra forseti. Landbn. hefur fjallað um frv. til l. um breyt. á lögum um tilbúning og verslun með smjörlíki o. fl. Þetta mál er búið að fara í gegnum Nd. og leggur n. til að það verði samþ. óbreytt. Fjarverandi við afgreiðslu málsins voru þeir Þorv. Garðar Kristjánsson og Eyjólfur Konráð Jónsson.