21.12.1979
Sameinað þing: 6. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í B-deild Alþingistíðinda. (276)

Þinghlé

Forseti (Jón Helgason):

Nú verður gert hlé á fundum Alþingis um sinn. Forsetar hafa ákveðið að þetta fundarhlé verði til 8. jan. n.k., nema nauðsyn beri til að kveðja til funda fyrr.

Ég óska hv. alþm. gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Ég þakka hæstv. ráðh., alþm. og starfsliði þingsins ánægjulegt samstarf á árinu. Ég óska utanbæjarþingmönnum farsællar heimferðar og góðrar heimkomu og vona að við megum öll hittast heil þegar fundir þingsins hefjast á ný eftir nýárið.