17.05.1980
Neðri deild: 79. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2799 í B-deild Alþingistíðinda. (2770)

3. mál, lántaka vegna framkvæmda á sviði orkumála

Frsm. meiri hl. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur tekið til meðhöndlunar 3. mál þingsins, sem er komið frá Ed. Hér er um að ræða staðfestingu á brbl. frá því á árinu 1979, settum 16. okt. 1979, og mælir meiri hl. n. með því að frv. verð samþ.

Ég sé ekki ástæðu til að fjalla frekar um mál þetta að þessu sinni. Ég mun koma inn á þessi mál nokkuð er við fylgjum úr hlaði frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1980. Hér er um að ræða fjármagn sem þegar hefur verið notað og varið, eins og fram kemur í frv., og er um að ræða staðfestingu á þeim gerðum.

Ég vil ítreka að meiri hl. n. leggur til að frv. verði samþykkt.